From Wikipedia, the free encyclopedia
Veiðarfærum má skipta upp í ýmsa flokka. Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna[1] skiptir veiðarfærum upp í 12 flokka og Emil Ragnarsson[2] skiptir þeim upp í fjóra flokka. Það eru dregin veiðarfæri, umlykjandi veiðarfæri, kyrrstæð veiðarfæri og svo ýmis hreyfanleg veiðarfæri. Einfaldari flokkun er að skipta þeim einungis upp í hreyfanleg og staðbundin veiðarfæri[3]. Hreyfanleg veiðarfæri eru dregin að eða í kringum væntanlegan afla á meðan fiskar eru blekktir að eða inn í staðbundin veiðarfæri. Botnvörpur og dragnót eru dæmi um hreyfanleg veiðarfæri, en lína og handfæri dæmi um staðbundin. Hvernig sem fólk flokkar veiðarfæri, þá er mikill munur á olíunotkun eftir flokkum veiðarfæra. Veiðarfæri sem eru dregin á eftir skipi eyða mun meiri olíu en staðbundin veiðarfæri, og þá sérstaklega botnvarpa.[4]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.