Uncharted: The Lost Legacy

2017 tölvuleikur From Wikipedia, the free encyclopedia

Uncharted: The Lost Legacy er hasarleikur fyrir PlayStation 4 og er hannaður af Naughty Dog. Leikurinn átti upphaflega að vera niðurhalanleg viðaukasaga fyrir Uncharted 4 en var gefinn út sem sér leikur. Ólíkt öðrum Uncharted-leikjum þá spilar maður sem þjófurinn Chloe Frazer sem var í öðrum og þriðja leiknum. Leikurinn kom út 23. ágúst 2017.

Söguþráður

Söguþráðurinn fylgir þjófinum og fjársjóðsleitandanum Chloe Frazer sem hefur ferðast til Indlands í leit að skögultönn Ganesar. Hún hefur ráðið Nadine Ross, fyrrverandi yfirkonu Shoreline, til þess að hjálpa sér að glíma við hrottafulla byltingarleiðtogann Asav sem er líka á eftir skögultönninni. Chloe og Nadine ferðast um frumskóga Indlands í fjársjóðsleitinni en þurfa að læra að treysta hvor annarri ef þeir ætla sér að sigra Asav.

Leikarar og hlutverk

  • Claudia Black sem Chloe Frazer
  • Laura Bailey sem Nadine Ross
  • Usman Ally sem Asav
  • Gideon Emery sem Orca
  • Troy Baker sem Sam Drake

Tilvísanir

Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.