Remove ads
bandarísk leiklistarverðlaun From Wikipedia, the free encyclopedia
Tony-verðlaunin (fullt heiti The Antoinette Perry Award for Excellence in Broadway Theatre, stytt sem Tony Awards eða Tonys) eru verðlaun veitt fyrir framúrskarandi árangur í leiklist. Þau eru afhent af American Theatre Wing og The Broadway League samtökunum við árlega athöfn í Midtown Manhattan.
Tony Awards | |
---|---|
Veitt fyrir | Framúrskarandi árangur í Broadway leiklist |
Land | Bandaríkin |
Umsjón |
|
Fyrst veitt | 6. apríl 1947 |
Vefsíða | tonyawards |
Verðlaunin voru stofnuð af framleiðandanum og leikstjóranum Brock Pemberton og eru nefnd eftir leikkonunni Antoinette „Tony“ Perry. Hún var einnig ein af stofnendum American Theatre Wing þar sem hún starfaði sem ritari. Verðlaunagripurinn er snúanlegur heiðurspeningur sem stendur á svörtum grunni úr pjátri.
Tony-verðlaunin eru samsvarandi Emmy-verðlaununum fyrir sjónvarp, Grammy-verðlaununum fyrir tónlist og Óskarsverðlaununum fyrir kvikmyndir. Aðili sem hefur hlotið öll fjögur verðlaunin er sagður hafa unnið The EGOT. Einnig eru Tonys sambærileg Laurence Olivier-verðlaununum í Bretlandi og Molière-verðlaununum í Frakklandi.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.