bók um Sval og Val frá árinu 1968 From Wikipedia, the free encyclopedia
Svaðilför til Sveppaborgar (franska: Panade à Champignac) eftir Franquin er nítjánda bókin í bókaflokknum um Sval og Val. Verkið hefur að geyma tvær sögur: Apana hans Nóa (franska: Bravo les Brothers) (22 bls.) sem birtist í teiknimyndablaðinu Sval árið 1966 og titilsöguna (37 bls.) sem birtist í sama blaði 1967 til 1968. Bókin kom út á frummálinu árið 1968 en á íslensku árið 1972. Þetta voru síðustu sögur Franquins um Sval og Val.
Svalur og Valur halda í frí til Sveppagreifans eftir að sá síðarnefndi hefur fengið nóg af uppátækjum Viggós viðutans í vinnunni. Greifinn reynist úrvinda eftir að hafa þurft að sinna Zorglúbb sem hefur þroska átta mánaða barns eftir áfallið sem hann varð fyrir í lok Með kveðju frá Z.
Ottó Papparapapp, vitgrannur fyrrum liðsmaður Zorglúbbs, sér sinn gamla foringja og ákveður að frelsa hann án þess að átta sig á ástandi hans. Papparapapp reynir að hrifsa Zorglúbb frá félögunum þar sem þeir ýta honum í barnavagni og tekst að lokum að nema hann á brott eftir æsilegan eltingaleik.
Óvitinn Zorglúbb sendir lömunargeisla í allar áttir innan Sveppaborgar og endar á að lama Papparapapp, Sval, Val og sjálfan sig. Sveppagreifinn kemur þó til bjargar. Allir komast aftur til sjálfs sín og Zorglúbb reynist hafa læknast og tekur til við friðsæl vísindastörf ásamt greifanum.
Aparnir hans Nóa gerist að mestu á ritstjórnarskrifstofu Tímaritsins Svals, með sömu aukapersónum og í bókunum um Viggó viðutan. Athafnamaðurinn herra Seðlan hyggst skrifa undir mikilvæga samninga, en allt fer í handaskolum ekki hvað síst vegna þriggja simpansar sem Viggó keypti á uppboði. Aparnir gera allt vitlaust, en að lokum komast þeir í hendur Nóa, gamla dýratemjarans sins.
Svaðilför til Sveppaborgar var gefin út af Iðunni árið 1972 í íslenskri þýðingu Jóns Gunarssonar. Þetta var fimmta bókin í íslensku ritröðinni.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.