Skráarending er viðskeyti aftan við heiti tölvuskráar sem segir til um í hvaða skráarsniði innihald hennar er. Oftast er skráarending aðgreind frá skráarheiti með punkti. Misjafnt er hvað stýrikerfi gera við skráarendingar. Í sumum stýrikerfum (t.d. DOS) eru skráarendingar skilyrði, en í öðrum (t.d. RISC OS) eru þær ekki notaðar. Sum stýrikerfi takmarka fjölda stafa í skráarendingum meðan önnur gera það ekki. Til dæmis eru viðurkenndar skráarendingar fyrir HTML-stiklutexta tvær: .htm og .html þar sem sú fyrri var fyrir stýrikerfi sem ekki leyfa fleiri en þrjá stafi í skráarendingu.

Dæmi um skráarendingar:

.txtAlgeng ending fyrir textaskrár
.htmlVefsíða (HTML-stiklutexti)
.cForritskóði skrifaður í forritunarmálinu C
.pngMynd á myndasniðinu PNG

Tengt efni

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.