From Wikipedia, the free encyclopedia
Peningar eða fé er í hagfræði sérhver vara eða hlutur, sem hægt er að nota sem greiðslu eða skiptimynt og til varðveislu eða mælingar verðmæta. Í sumum tilfellum er þess einnig krafist að peningar geri kleift að fresta afhendingu „raunverulegra“ verðmæta. Í daglegu tali eru peningar samnefnari við opinbera gjaldmiðla tiltekinna ríkja.
Mikilvægi peninga felst í því að þeir gera vöruskipti óþörf en vöruskipti eru oft óhagkvæm þar sem þau byggjast á því að báðir aðilar viðskipta hafi vöru sem gagnaðilinn hafi áhuga á. Með peningum er málið einfaldað þar sem hægt er að afhenda einum aðila vöru í skiptum fyrir peninga og greiða svo öðrum aðila fyrir þá vöru sem óskað er eftir.
Peningaseðlar og greiðslukort eru mikið notuð við verslun með smávöru. Algengt er orðið að millifæra peninga rafrænt í heimabönkum. Ávísanir (tékkar) og gíróseðlar voru mjög mikið notaðir á Íslandi fyrir tíma greiðslukortanna.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.