Framfærsla til frumna og lífvera til að styðja við líf From Wikipedia, the free encyclopedia
Næring er það þegar frumum og lífverum er gefið nauðsynlegt efni (í formi matar) til þess að lifa af. Hægt er að koma í veg fyrir og draga úr mörgum heilsuvandamálum með hollustufæði.
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. |
Heimildir skortir fyrir staðhæfingum í þessari grein. Ef þú vilt bæta við heimild vinsamlegast bættu þeim við undir nýrri fyrirsögn („Heimildir“) eða skildu eftir athugasemd á spjallsíðunni. |
Mataræði lífverunnar er það sem hún étur og ræðst af því sem lífverunni líkar vel við að éta. Næringarráðgjafar eru einstaklingar sem sérhæfa sig í næringarfræði, áætlanagerð máltíða, efnahagsmálum, undirbúningi og svo framvegis. Þeir eru útlærðir til að gefa einstaklingum (bæði heilbrigðum og veikum) og samtökum örugg ráð um hvað er best að borða.
Slæmtt mataræði getur verið hættulegt heilbrigði einstaklingsins og valdið skortsjúkdómum eins og skyrbjúg, taugakröm og prótínkröm og sjúkdómum sem ógna heilbrigði eins og offitu og efnaskiptaheilkennum auk þess þrálátra kerfabundinna sjúkdóma eins og hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki og beinþynningu.
Höfuðtegundir næringarefnanna eru sjö: Fita, kolvetni, prótín, steinefni, trefjaefni, vatn og vítamín. Snefilefni eru vítamín og steindir.
Undirstöðufrumefnin (fyrir utan trefjaefni og vatn) gefa orku sem er mæld með Júlum eða kílókaloríum. Kolvetni og prótín gefa 17 kJ (4 kkal) af orku á hvert gramm og fitur gefa 37 kJ (9 kkal) á hvert gramm.[1] Vítamín, steinefni, trefjar og vatn gefa enga orku en eru öll nauðsynleg af öðrum ástæðum.
Kolvetnis- og fitusameindir samanstanda af kolefnis-, vetnis- og súrefnisfrumeindum. Kolvetni geta verið einfaldar einsykrur (glúkósi, frúktósi og galaktósi) eða flóknar fjölsykrur (mjölvi). Fitur eru þríglýseríð gerð úr fitusýrueinliðum festum við glýseról. Sumar en ekki allar fitusýrur eru nauðsynlegar í mataræðinu, það er að segja að þær geti ekki myndast í líkamanum. Prótínsameindir innihalda niturfrumeindir. Einliður prótíns sem innihalda nitur eru amínósýrur, á meðal þeirra eru sumar nauðsynlegar amínósýrur. Þær eru ekki notaðar í efnaskiptum. Ef þær eru notaðar sem orka íþyngir losun nitursins nýrum.
Önnur snefilefni eru andoxunarefni (e. antioxidants) og jurtaefni (e. phytochemicals).
Flestar matvörur innihalda blöndu allra næringarefna. Maður þarf sum næringarefni reglulega en önnur öðru hverju. Ójafnvægi næringarefna geta valdið heilsubresti (bæði ofgnótt eða skortur næringarefnis).
Næringarkvilli eða eldiskvilli er hvers kyns sjúkdómur sem leggst á menn (og dýr) vegna ójafnvægis í fæði, það er að segja vannæringar eða ofnæringar af einhverju tagi.
Næringarefni | Skortur | Ofgnótt |
---|---|---|
orka | sultur, kröm | offita, sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómur |
einföld kolvetni | ekkert | sykursýki, offita |
flókin kolvetni | ekkert | offita |
mettuð fita | lágt magn kynhormóna [2] | hjarta- og æðasjúkdómur (að sögn flestra lækna og næringarfræðinga) |
transfita | ekkert | hjarta- og æðasjúkdómur |
ómettuð fita | ekkert | offita |
fita | vanupptaka vítamína sem leysast upp í fitu, kanínusultur (ef prótínneysla er mikil) | hjarta- og æðasjúkdómur (að sögn sumra) |
omega 3-fitur | hjarta- og æðasjúkdómu | blæðing |
omega 6-fitur | ekkert | hjarta- og æðasjúkdómu, krabbamein |
kólesteról | ekkert | hjarta- og æðasjúkdómu |
prótín | prótínkröm | kanínusultur |
natrín | natríumskortur | natríumdreyri, háþrýstingur |
járn | blóðleysi | skorpulifur, hjartasjúkdómur |
joð | keppur, vanvirkni skjaldkirtils | joðeituráhrif (keppur, vanvirkni skjaldkirtils) |
A-vítamín | augnkríma og náttblinda, lágt magn testósteróns | A-vítamíneitrun (skorpulifur, hárlos) |
B1-vítamín | taugakröm | |
B2-vítamín | sprungur á húðinni og þokuglæra | |
B3-vítamín | húðkröm | meltingartruflun, hjartsláttartruflun, fæðingargallar |
B12-vítamín | mergruni | |
C-vítamín | skyrbjúgur | niðurgangur sem saknar vessaþurrðar |
D-vítamín | beinkröm | D-vítamíneitrun (vessaþurrð, uppköst, hægðatregða) |
E-vítamín | taugasjúkdómar | E-vítamíneitrun (storkuvari: of mikil blæðing) |
K-vítamín | blæðing | |
kalsín | beinþynning, kalkkrampi, carpopedal spasm, raddbandakrampi, hjartsláttartruflun | þreyta, geðlægð, óreiða, lystarleysi, ógleði, uppköst, hægðatregða, brisbólga, ofsamiga |
magnesín | háþrýstingur | þróttleysi, ógleði, uppköst, öndurarvandamál og blóðþrýstingsfall |
kalín | kalíumbrestur, hjartsláttartruflun | blóðkalíumhækkun, hjartsláttur |
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.