From Wikipedia, the free encyclopedia
Lundabaggar er gamall íslenskur réttur sem vinsæll er á þorrablótum. Þegar um var að matreiða lundabagga þá voru ópillaðir kindaristlar ristir eftir endilöngu, skafnir, þvegnir og lagðir í saltvatn um tíma. Þeim var síðan vafið utan um kjötstrengli, alltaf lundir í fyrri tíð en eftir að farið var að selja kjötstrokka í kaupstað var oft haft annað kjötmeti með í lundabagga. Utan um vafninginn var langoftast saumuð þind, en það gat líka verið magáll eða vömb. Hann var soðinn og fergður meðan hann var að kólna. Lundabaggi var stundum borðaður nýr en oftast súr en þó tíðkaðist sum staðar að salta hann og reykja. Einnig þekktist að hálfsjóða lundabagga áður en þeir voru hengdir upp í reyk, á sama hátt og magála.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.