Lester Bowles „Mike“ Pearson (23. apríl 1897 – 27. desember 1972) var kanadískur fræðimaður, stjórnmálamaður og ríkiserindreki sem vann friðarverðlaun Nóbels árið 1957 fyrir að skipuleggja inngrip Sameinuðu þjóðanna í Súesdeiluna. Hann var forsætisráðherra Kanada frá árinu 1963 til 1968 fyrir tvær minnihlutastjórnir Frjálslynda flokksins í röð.

Staðreyndir strax Forsætisráðherra Kanada, Þjóðhöfðingi ...
Lester B. Pearson
Thumb
Pearson árið 1963.
Forsætisráðherra Kanada
Í embætti
22. apríl 1963  20. apríl 1968
ÞjóðhöfðingiElísabet 2.
LandstjóriGeorges Vanier
Roland Michener
ForveriJohn Diefenbaker
EftirmaðurPierre Trudeau
Persónulegar upplýsingar
Fæddur23. apríl 1897
Newtonbrook, Toronto, Kanada
Látinn27. desember 1972 (75 ára) Ottawa, Kanada
StjórnmálaflokkurFrjálslyndi flokkurinn
MakiMaryon Moody (g. 1925)
Börn2
HáskóliViktoríuháskóli í Toronto
St John's-háskóli, Oxford
StarfStjórnmálamaður, ríkiserindreki, sagnfræðingur, hermaður
Verðlaun Friðarverðlaun Nóbels (1957)
UndirskriftThumb
Loka

Á meðan Pearson var forsætisráðherra innleiddu ríkisstjórnir hans víðtækari heilbrigðisþjónustu, námslán, eftirlaun og tóku upp kanadíska fánann og kanadísku ríkisorðuna. Ríkisstjórnir hans sameinuðu einnig herafla Kanada.[1] Pearson hélt Kanada utan við Víetnamstríðið og setti á fót nefnd um fjöltyngi og fjölmenningu. Árið 1967 afnam ríkisstjórn hans í reynd dauðarefsingu með því að einskorða hana við fáeina glæpi sem voru síðan lagðir niður árið 1976. Vegna þessara afreka og verka sinna með Sameinuðu þjóðunum og alþjóðastjórnmálum er Pearson gjarnan talinn einn áhrifamesti Kanadamaður 20. aldarinnar[2] og einn besti forsætisráðherra Kanada.[3]

Tilvísanir

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.