Landmannalaugar

From Wikipedia, the free encyclopedia

Landmannalaugar

Landmannalaugar er íslensk laug og vinsæll ferðamannastaður á Fjallabaksleið nyrðri austur af Heklu; í Friðlandi að fjallabaki. Vegur þangað er aðeins fær að sumarlagi. Mikill jarðhiti er í Landmannalaugum og vinsæl náttúruböð. Jarðhitinn tengist einu mesta háhitasvæði landsins, Torfajökulssvæðinu. Landmannalaugar eru rómaðar fyrir náttúrufegurð og litríkt berg, þar er mikið um líparít, líparíthraun og hrafntinnu. Vinsæl gönguleið Laugavegurinn liggur milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Vanalegt er að ganga þá leið á fjórum dögum en stundum er bætt við ferð allt til Skóga yfir Fimmvörðuháls milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls. [heimild vantar]

Thumb
Úfið hraun í Landmannalaugum
Thumb
Aðstaða í Laugum.
Thumb
Landmannalaugar.
Thumb
Laugar.

Ferðafélag Íslands rekur skála í Landmannalaugum og þar er skálavörður að sumri. Ferðafélagið reisti fyrst sæluhús í Landmannalaugum árið 1951 en núverandi hús er að stofni til frá 1969. Það stendur í um 600 metra hæð við jaðar Laugahrauns.

Skálar eru á þessum stöðum leiðinni milli Landmannalauga og Skóga:

Thumb
Víðmynd.
  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.