From Wikipedia, the free encyclopedia
Kálfafellsstaður er kirkjustaður í Suðursveit í Austur-Skaftafellssýslu. Kirkja hefur verið á Kálfafellsstað í margar aldir. Þar var torfkirkja til ársins 1885 en þá var reist timburkirkja sem eyðilagðist algjörlega nokkru seinna í miklu fárviðri 7. janúar 1886, svonefndum Knútsbyl. Líkneski af Ólafi helga, hinum forna dýrlingi staðarins er eini hluturinn sem fannst heill eftir að kirkjan fauk. Það er nú varðveitt á Þjóðminjasafni. Núna er steypt kirkja á Kálfafellsstað en hún var reist 1926-27.
Vigfús Benediktsson (Galdra-Fúsi) var um tíma prestur á Kálfafellsstað. Torfhildur Hólm rithöfundur var frá Kálfafellsstað en faðir hennar Þorsteinn Einarsson var prestur þar.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.