From Wikipedia, the free encyclopedia
Kákasusgreni, fræðiheiti Picea orientalis[3] er grenitegund ættuð frá Kákasus og aðliggjandi svæði í norðaustur Tyrklandi.
Kákasusgreni | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Villt kákasusgreni. | ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Picea orientalis (L.) Link | ||||||||||||||
Útbreiðsla kákasusgrenis | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
|
Þetta er stórt sígrænt barrtré, að 30 til 45 metra hátt (einstaka sinnum að 57 metrum), með stofnþvermál að 1.5 meter (einstaka sinnum að 4 metrar). Kákasusgreni finnst einnig í norður Íran, en þar hefur útbreiðslan dregist saman vegna skógareyðingar.
Sprotarnir eru dauf gulbrúnir, og nokkuð hærðir. Barrið er nálarlaga, það stysta á nokkru greni, 6 til 8 mm langt, tígullaga í þversniði, dökkgrænt með óáberandi loftaugarásum. Könglarnir eru mjó-sívalir til keilulaga, 5 til 9 sm langir og 1.5 sm breiðir, rauðir til purpuralitir óþroskaðir og verða við þroska dökkbrúnir (5 til 7 mánuðum eftir frjóvgun), og eru með stífar, mjúkávalar hreisturblöðkur.
Þetta er vinsælt prýðistré í stórum görðum, vel metið í Norður Evrópu og Bandaríkjunum vegna aðlaðandi barrs og hæfileika til að vaxa í margskonar jarðvegi. Það er einnig ræktað í litlum mæli í skógrækt sem jólatré, fyrir timbur og pappírs framleiðslu, þó að hægari vöxtur miðað við rauðgreni dragi úr mikilvægi þess utan náttúrulegs útbreiðslusvæðis þess. Þessi tegund hefur fengið Royal Horticultural Society's Award of Garden Merit.[4] Algengt skrautafbrigði þess er Picea orientalis 'Aureospicata', sem er með gylltan lit á nýju barri að vori.
Stæðilegt kákasusgreni er í Grasagarði Reykjavíkur og annað smærra. Lítið eitt er til af því annarsstaðar á landinu.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.