Remove ads
Enskur rithöfundur (1775-1817) From Wikipedia, the free encyclopedia
Jane Austen (16. desember 1775 – 18. júlí 1817) var enskur rithöfundur, fræg fyrir sögur sínar um mið- og yfirstéttarkonur. Frægasta verk hennar er Hroki og hleypidómar (Pride and Prejudice) sem kom fyrst út 1813. Hún gaf verk sín út nafnlaust og þau vöktu töluverða athygli, en nafnleysi hennar gerði það að verkum að hún var ekki í tengslum við aðra rithöfunda. Þótt hún hafi skrifað á rómantíska tímanum fylgdi hún ekki rómantísku bókmenntastefnunni, heldur einkennast verk hennar af skynsemishyggju og hún beitir háði gegn tilfinningasemi. Hún var fyrst upphafin sem einn mesti rithöfundur á enska tungu nokkrum áratugum eftir dauða sinn, eða á Viktoríutímabilinu.
Fædd: | 16. desember 1775 Steventon Rectory, Hampshire, Englandi |
---|---|
Látin: | 18. júlí 1817 (41 árs) Winchester, Hampshire, Englandi |
Þjóðerni: | Ensk |
Þekktasta verk: | Hroki og hleypidómar |
Undirskrift: |
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.