From Wikipedia, the free encyclopedia
Jómfrúaeyjar eða Meyjaeyjar (einnig rangnefndar Jómfrúreyjar) eru eyjaklasi í Karíbahafinu. Eyjunum er skipt upp í tvo hluta. Annar er breskt yfirráðasvæði handan hafsins og kallast Bresku Jómfrúaeyjar. Hinn hlutinn kallast Bandarísku Jómfrúaeyjar og tilheyra Bandaríkjunum.
Kristófer Kólumbus skírði eyjarnar Santa Ursula y las Once Mil Vírgenes (stytt í Las Vírgenes) eftir heilagri Úrsúlu og 11.000 jómfrúm hennar. Á tímum landafundanna bjuggu þar Karíbar en þeim var útrýmt snemma á nýlendutímanum.
Til eyjanna voru seinna fluttir afrískir þrælar og látnir vinna á sykurplantekrum. Plantekrurnar eru nú horfnar, en afkomendur þrælanna búa enn á eyjunum. Ferðaþjónusta er nú aðalatvinnugreinin.
Á bæði Bresku og Bandarísku Jómfrúaeyjum er vinstri umferð, en gjaldmiðillinn er Bandaríkjadalur.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.