Isaac Hayes
From Wikipedia, the free encyclopedia
Isaac Lee Hayes, Jr. (20. ágúst 1942 – 10. ágúst 2008) var bandarískur tónlistarmaður, lagahöfundur og söngvari, sem sérhæfði sig í sálartónlist og fönki. Hayes samdi einnig tónlist við margar kvikmyndir, þekktast af þeim verkum var tónlistin í myndinni Shaft frá 1971 en hann hlaut Óskarsverðlaunin fyrir titillag myndarinnar. Einnig hlaut hann nokkur Grammy-verðlaun á ferlinum.
![Thumb](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/43/Isaac_Hayes_2.jpg/320px-Isaac_Hayes_2.jpg)
Hayes var rödd persónunnar Chef í teiknimyndaseríunni South Park frá upphafi hennar þangað til að hann hætti vegna ósættis við höfunda þáttanna vegna ádeilu þeirra á Vísindakirkjuna sem hann tilheyrði.
Wikiwand - on
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.