samtök er þróa alþjóðlega staðla fyrir viðskipti og iðnað From Wikipedia, the free encyclopedia
Alþjóðlega staðlastofnunin (ISO) er alþjóðlegt fulltrúaráð sem samsett er af fulltrúum ríkisstaðlastofnana og sér um að setja fram alþjóðlega staðla fyrir viðskipti og iðnað. Eru þessir staðlar þekktir sem ISO staðlar. Hún var stofnsett 23. febrúar 1947.
Stofnunin er yfirleitt kölluð einfaldlega ISO (borið fram sem „ísó“). ISO stendur fyrir enska heitið International Organization for Standardization[1], eða svipað. Annars er orðið ISO dregið af gríska orðinu isos, sem þýðir „jafngildur“. Vegna þess að eigið nafn stofnuninnar er mismunandi í hverju tungumáli ákváðu stofnendur hennar að nota „ISO“ sem alhliða stutt heiti á henni.
Þó að ISO flokki sjálfa sig sem óopinbera stofnun, er hún valdmeiri en flestar aðrar óopinberar stofnanir vegna þess að staðlar sem hún setur verða oft að lögum í gegnum milliríkjasamninga eða ríkisstaðla, og hagar hún sér yfirleitt meira eins og samtök með sterk tengsl við ríkistjórnir. Meðlimir ISO teljast nokkur af stærri hlutafélögum heims og að minnsta kosti ein staðalnefnd frá hverju landi.
ISO starfar náið með Alþjóðlega raftækniráðinu (IEC) sem er ábyrgt fyrir stöðlun raftækja.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.