From Wikipedia, the free encyclopedia
Illugi Jökulsson (fæddur 13. apríl 1960) er íslenskur útvarpsmaður, blaðamaður og rithöfundur. Illugi hefur séð um útvarpsþáttinn Frjálsar hendur á Rás 1 síðan 1986[1].
Illugi er sonur Jóhönnu Kristjónsdóttur (1940-2017) og Jökuls Jakobssonar (1933-1978). Elísabet Jökulsdóttir (f.1956) rithöfundur og Hrafn Jökulsson (1965-2022) eru alsystkin hans. Illugi er giftur leikkonunni Guðrúnu Gísladóttur (f. 1954). Saman eiga þau 2 börn ásamt því að Guðrún átti son úr fyrra sambandi[2]. Dóttir þeirra er útvarpskonan Vera Illugadóttir.
Illugi gekk í Menntaskólann í Reykjavík, en hætti skólagöngu sinni 1979, þá í sjötta bekk. Hann hóf störf sem blaðamaður á Vísi í apríl 1979 og starfaði þar til vors 1981[1]. Árið 1986 hóf Illugi umsjón sína á útvarpsþættinum "Frjálsar hendur" á Rás 1 og hefur sinnt því starfi nánast sleitulaust síðan[1]. Illugi stofnaði tímaritið Sagan öll árið 2007 og gegndi þar ritstjórnarstörfum[3]. Einnig stofnaði hann og ritstýrði tímaritinu Skakki turninn, þar sem hann vann með Veru. Þau Vera hafa einnig skrifað tvær bækur saman[4].
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.