íslenskur prestur og núverandi biskup Íslands From Wikipedia, the free encyclopedia
Guðrún Karls Helgudóttir (fædd 27. apríl 1969) er íslenskur prestur og núverandi biskup Íslands. Hún er sóknarprestur í Grafarvogssókn og hefur starfað á Akranesi, Seltjarnarnesi og í Gautaborg.
Guðrún sigraði í seinni umferð biskupskjörs 2024 og hlaut rúm 52% atkvæði.[1][2] Hún var vígð til embættis þann 1. september.[1]
Guðrún er fædd í Reykjavík. Hún útskrifaðist með stúdentspróf frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti árið 1992 og með B.A.-próf í guðfræði frá Háskóla Íslands haustið 1998. Hún lauk cand. theol.-prófi við sama skóla árið 2000. Hún hafði umsjón með barnastarfi við Árbæjarkirkju og var æskulýðsfulltrúi við Akraneskirkju og Grafarvogskirkju á árunum 1999 til 2000.[3]
Guðrún var í starfsnámi í Gautaborgarstifti árin 2001 til 2003. Hún var meðferðarfulltrúi í kvennaathvarfi í Gautaborg árin 2000 til 2001 og æskulýðsfulltrúi í Lunby-söfnuðinum í borginni. Hún vígðist þann 11. janúar 2004 í Dómkirkjunni í Gautaborg.[3]
Guðrún varð prestur í Grafarvogssöfnuði árið 2008 og hefur verið sóknarprestur í sama söfnuði frá árinu 2016.[3]
Guðrún er gift Einari Erni Sveinbjörnssyni prófessor við eðlisfræðideild HÍ og á með honum tvær dætur og tvær dótturdætur.[3]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.