From Wikipedia, the free encyclopedia
Dover er bær og mikilvæg ferjuhöfn í sýlsunni Kent í Suðaustur-Englandi. Bærinn snýr að Frakklandi og liggur við þrengstu lengju Ermarsundsins. Dover er fyrir suðaustan Kantaraborg, fyrir austan höfuðbæ sýlsunnar Maidstone og fyrir norðaustan Dungeness og Hastings. Bærinn er þjónustumiðstöð svæðisins og þaðan sigla ferjur til Calais í Frakklandi. Höfnin í Dover er stór og mikilvæg og er næsta höfnin að Frakklandi í Englandi. Dover er þekkt um heim allan fyrir kalksteinshamrana Hvítukletta.
Uppgröftur á svæðinu sýna að staðsetning bæjarins hafi verið mikilvæg í gegnum söguna, og að fólk hafi lengi verið að koma inn í og fara ut úr landinu í gegnum Dover. Áin Dour gaf bænum nafnið hans og er meðal fárra enskra staðarnafna sem eiga samsvarandi nöfn í frönsku: Douvres.
Flestir sem búa í Dover vinna í þjónustum tengdum ferjunum, þótt margar ferjaþjónustur hafi hætt undanfarin ár. Margir vinna í ferðamannaþjónustu. Það var einu sinni hermannaskáli í Dover, en honum var lokað árið 2007.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.