Boðháttur (skammstafað sem bh.) er einn af mörgum háttum sagna sem gefur til kynna skipun, bann eða boð.
Í íslensku er boðhátturinn alltaf í annarri persónu og stendur alltaf fremst í setningu. Tvær leiðir eru til að mynda boðhátt í íslensku: stýfður boðháttur og viðskeyttur boðháttur.
Stýfður boðháttur
Fyrsta leiðin er að finna stofn sagnorða (sem er gert með því að taka nafnháttinn (að hoppa, að elska) og fjarlægja endinguna -a nema þetta sé veik sögn sem endar á -aði í þátíð eins og skrifa) og kallast þetta stýfður boðháttur og er hann í annarri persónu eintölu.
Dæmi
- Tak sæng þína og gakk!
- Les þú þessar bækur drengur!
- Vinn núna verk þín!
- Hlæ þú ekki að mér stúlka!
Viðskeyttur boðháttur
Viðskeyttur boðháttur er þegar fornafni (þú eða þið) er skeytt aftan á stofn sagnar og tekur breytingum í samræmi við grannhljóð. Boðháttur annarrar persónu fleirtölu hefur sama form og framsöguháttur nútíðar. Persónufornafninu þið er ýmist sleppt eða haft á eftir boðhættinum.
Dæmi: Farið (þið) út! (Samanber „Þið farið út“ þar sem sögnin er í framsöguhætti.)
Hægt er að mynda boðhátt af sögninni að vinna (stýfður vinn[1], viðskeyttur fleirtölu vinnið[1]) en hann er sjaldan notaður.[2]
Dæmi
- elska (stýfður) + þið (fornafn) → elskið
- Elskið friðinn börnin góð.
- flyt (stýfður) + þú (fornafn) → flyttu
- Flyttu allt draslið út.
- lem (stýfður) + þú (fornafn) → lemdu
- Lemdu ekki bróður þinn Elsa.
- keyr (stýfður) + þú (fornafn) → keyrðu
- Keyrðu mig út í búð.
Í ensku
Í ensku hafa boðháttur („Jump!“ (hoppaðu)) og nafnháttur (to jump (að hoppa)) sama form. Dæmi:
- „Paul, do your homework now!“ (enska)
- „Páll, sinntu heimanáminu þínu núna!“ (íslenska)
- „Go to Stella's place and get some sugar.“ (enska)
- „Farðu heim til Stellu og náðu í sykur.“ (íslenska)
Boðháttur fyrstu persónu fleirtölu (us, „við“) er gefinn til kynna með orðasambandinu let's (bókstaflega lof okkur en samsvarar frekar við skulum). Dæmi:
- „Let's go.“ sem er stytting á „Let us go.“ (enska)
- „Förum.“ (íslenska)
Í latínu
Í latínu er boðháttur notaður. Dæmi:
- „Festina! Cibus defrigescet.“
- (á íslensku: Flýttu þér. Maturinn mun kólna.)
- „Cave canem!“
- (á íslensku: Varastu hundinn!)
- „Vade retro me!“
- (á íslensku: Farðu/Vík [burt] frá mér!)
Þegar boðháttur í latínu er settur í fleirtölu bætist oftast -te við boðháttinn í fleirtölu.
Wikiwand in your browser!
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.