Björgólfur Thor Björgólfsson

íslenskur kaupsýslumaður og fjárfestir From Wikipedia, the free encyclopedia

Björgólfur Thor Björgólfsson
Remove ads

Björgólfur Thor Björgólfsson (f. 19. mars 1967) er íslenskur kaupsýslumaður. Hann er þekktur erlendis sem Thor Björgólfsson. Björgólfur Thor var fyrsti Íslendingurinn sem komst á lista Forbes Magazine yfir 500 ríkustu einstaklinga heims. Í mars 2008 voru eignir hans metnar á 3,5 milljarða dollara, eða um 227 milljarða króna.[1]

Staðreyndir strax Fæddur, Þjóðerni ...
Remove ads

Björgólfur Thor var mikið gagnrýndur í kjölfar bankahrunsins á Íslandi í október 2008, meðal annars fyrir að vera aðaleigandi Landsbankans í gegnum fjárfestingafélag sitt Samson ehf sem stóð fyrir hinum umdeildu Icesavereikningum. Landsbankinn var yfirtekinn af ríkinu í kjölfar bankahrunsins. Árið 2009 var Björgólfur metinn á um 1 milljarð dollara og var því enn ríkasti maður íslands þrátt fyrir fall Landsbankans.[2] Eftir hrun hefur Björgólfur einbeitt sér að fjárfestingum í tækni- og sprotafyrirtækum víða um heim og árið 2023 var talið að hann væri enn ríkastur Íslendinga með eignir upp á um 300 milljarða króna.[3]

Remove ads

Ævi

Björgólfur er sonur Björgólfs Guðmundssonar, sem einnig var fyrirferðamikill í íslensku viðskiptalífi. Móðir Björgólfs er Þóra Hallgrímsson, dóttir Hallgríms Fr. Hallgrímssonar forstjóra Skeljungs og Margrétar Thors, sem var dóttir dansk-íslenska athafnamannsins Thors Jensen og heitir Björgólfur eftir honum. Hann er kvæntur Kristínu Ólafsdóttur og eiga þau þrjú börn. Heimili hans er í London.

Björgólfur Thor lauk námi í viðskiptafræði frá New York University árið 1991. Hann rak síðan skemmtistaðinn á Hotel Borg [4] ásamt Skúla Mogensen og síðan Tunglið.[5] Björgólfur fór fljótlega eftir það, eða árið 1993, til Sankti Pétursborgar í Rússlandi ásamt föður sínum og Magnúsi Þorsteinssyni til að setja á fót gosdrykkjaverksmiðjuna Gosann.[6] Rekstur verksmiðjunnar var erfiður framan af, bæði vegna málaferla innan fyrirtækisins og erfiðra viðskiptaaðstæðna í Rússlandi.

Remove ads

Fjárfestingar

Björgólfur og félagar færðu sig um set í lok tíunda áratugarins og keyptu rekstur Bravo bruggverksmiðjunnar. Fljótlega hófst þar framleiðsla á Botchkarov bjór sem sló í gegn í heimalandinu. Heineken keypti Bravo árið 2002, fyrir $400 milljónir.

Í kjölfar einkavæðingu ríkisbankanna árið 2002 keypti Samson ehf 45% hlut í Landsbanka Íslands. Kaupin voru fjármögnuð með 3 milljarða króna láni frá Kaupþingbanka.

Árið 2000 fjárfesti Björgólfur í gegnum Samson í félaginu Pharmaco[7] og árið 2002 keypti Samson einnig lyfjafyrirtækið Delta og sameinaði það Pharmaco undir nafninu Actavis.[8]

Einnig keypti Björgólfur Thor, í gegnum nokkra milliliði, stóran hlut í Eimskipafélagi Íslands árið 2003. Landsbankinn eignaðist líka fjárfestingabankann Burðarás og sameinaði hann fjárfestingafélaginu Straumi, undir nafninu Straumur-Burðarás.

Björgólfur Thor var einnig mjög virkur á fjarskiptamörkuðum, sérstaklega í Austur-Evrópu, og átti m.a. stóran hlut í símafyrirtækinu Novator í Búlgaríu. Fyrirtæki hans, Novator, Nova stundaði einnig fjarskiptaþjónustufyrirtæki á Íslandi.

Remove ads

Bankahrunið

Í kjölfar bankahrunsins var Landsbankinn ríkisvæddur og skömmu seinna varð eignarhaldsfélag Björgólfs, Samson gjaldþrota.[9] Félag hans Novator Pharma hefur einnig staðið í ströngu vegna láns frá Deutsche Bank sem hljóðar uppá 700 milljarða króna. Lánið var gert upp við söluna á Actavis til bandaríska lyfjafyrirtækisins Watson í apríl 2012.[10]

Í júlí óskuðu Björgólfsfeðgar eftir því að felldir yrðu niður 3 af 6 milljörðum af láni sem þeir höfðu fengið hjá Búnaðarbankanum til kaupa á Landsbankanum,[11] þeirri beiðni var hafnað. Stöð 2 flutti frétt um að 12 milljarðar króna voru fluttar úr félögunum Samson ehf og Straum-Burðarás inn á um eitt hundrað reikninga á skattaskjólseyjum m.a. Caymaneyja.[12] Björgólfur neitaði þessu og í maí 2010 dró Stöð 2 frétt sína til baka [13].

Í kjölfar bankahrunsins blossaði upp mikil reiði í garð auðmannsins, og voru skemmdarverk unnin á húsnæði í hans eigu og Hummer-bifreið sem hann er skráður fyrir.[14] Hópur smærri hluthafa í Landsbankanum var einnig ósáttur við framferði Björgólfs við stjórn bankans þar sem þeir töldu að hann hefði leynt upplýsingum um lánveitingar bankans og brotið yfirtökureglur og þannig valdið hluthöfunum tjóni. Árið 2015 var höfðað mál gegn Björgólfi eftir nokkurra ára undurbúning með þátttöku 270 einstaklinga og félaga en málið velktist um í dómskerfinu án niðurstöðu þar til sátt náðist í því 2024 sem fólst í því að Björgólfur greiddi hluthöfunum 1.050 milljónir króna, en án þess þó að viðurkenna nokkra sök í málinu. Skilyrði Björgólfs fyrir sáttinni var þó að félög í eigu Róberts Wessman myndu ekki fá hlutdeild í greiðslunni.[15]

Í apríl 2025 fjallaði fréttaskýringaþátturinn Kveikur um umfangsmiklar njósnir sem Björgólfur lét gera um ýmsa af forvígismönnum málshöfðunarinnar um haustið 2012. Þrír starfandi eða nýlega hættir lögreglumenn tóku þátt í þessum njósnum sem fólu í sér að fylgjast með heimilum og vinnustöðum fólks og skrásetja ferðir þess. Ástæðan fyrir þessu var sögð sú að Björgólfur vildi sanna það að hópmálsókin væri í raun að undirlagi Róberts Wessman en auðmennirnir tveir höfðu átt í miklum illdeilum.[16]

Remove ads

Tilvísanir

Loading content...

Tenglar

Loading content...
Loading related searches...

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Remove ads