Þríhnúkagígur
From Wikipedia, the free encyclopedia
From Wikipedia, the free encyclopedia
Þríhnúkagígur er gígur sem liggur í norðaustasta Þríhnúknum, rúma 4 km vestur af skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Niður frá gígopinu gengur gríðarmikill gíghellir, Þríhnúkahellir. Er hann talin eitt stærsta og merkasta náttúrufyrirbæri sinnar tegundar á jörðinni.
Gígopið er þverhnípt og um 4 sinnum 4 metra stórt. Fyrst var sigið niður í gíghellinn 1974[1] og 1991 var hann svo kannaður ítarlega og kortlagður. Þríhnúkahellir er flöskulaga ketill sem er um 150 þúsund rúmmetrar að stærð. Botninn er á stærð við fótboltavöll og er 120 metra undir yfirborði jarðar og þaðan liggja svo gígrásir niður á um 200 metra dýpi.
Í ljósi þess hvað hann þykir sérstakur hafa verið settar fram hugmyndir um hvernig megi bæta aðgengi að honum, sem fæli m.a. í sér að bora göng inn í hann miðjan og byggja útsýnispall inni í honum.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.