From Wikipedia, the free encyclopedia
Þingnes er sögustaður í nágrenni Reykjavíkur. Þar er talið að Kjalarnesþing hafi verið háð um hríð og að þar hafi stofnun Alþingis verið undirbúin. Samkvæmt frásögn Landnámu og Íslendingabókar stofnaði Þorsteinn Ingólfsson, sonur Ingólfs Arnasonar, til þings á Kjalarnesi áður en Alþingi var stofnað á Þingvöllum um 930.
Jónas Hallgrímsson rannsakaði rústir hins mögulega þingstaðar árið 1841 og Þjóðminjasafnið á árunum 1981-1986. "Hægt hefur verið að tímasetja rústirnar frá uppafi Íslandsbyggðar fram undir 1200. Ekki hefur að fullu verið úr því skorið með fornleifafræðilegum rökum hvort þarna hefur verið þingstaður, þó leiða megi að því sterkum líkum"[1]. Rannsóknirnar leiddu meðal annars í ljós hringlaga grjótgarð, um 18 m í þvermál. Einnig fundust merki um járnvinnslu á svæðinu. Árið 1938 var Þingnes friðlýst.
Þingnes er tangi sem skagar út í Elliðavatn en nesið fór að hluta undir vatn þegar Elliðavatnsstífla var byggð á árunum 1924-26.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.