Óscar Rafael de Jesús Arias Sánchez (f. 13. september 1940) er kostarískur stjórnmálamaður sem hefur tvívegis verið forseti Kosta Ríka; frá 1986 til 1990 og frá 2006 til 2010. Arias hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1987 fyrir að vinna að gerð friðaráætlunar til að binda enda á Mið-Ameríkukreppuna.[1][2]
Óscar Arias Sánchez | |
---|---|
Forseti Kosta Ríka | |
Í embætti 8. maí 1986 – 8. maí 1990 | |
Varaforseti | Jorge Manuel Dengo Obregón Victoria Garrón de Doryan |
Forveri | Luis Alberto Monge |
Eftirmaður | Rafael Ángel Calderón Fournier |
Í embætti 8. maí 2006 – 8. maí 2010 | |
Varaforseti | Laura Chinchilla Kevin Casas |
Forveri | Abel Pacheco |
Eftirmaður | Laura Chinchilla |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 13. september 1940 San José, Kosta Ríka |
Þjóðerni | Kostarískur |
Stjórnmálaflokkur | Þjóðfrelsisflokkurinn |
Maki | Margarita Penón Góngora (skilin) |
Börn | 2 |
Háskóli | Boston-háskóli Háskóli Kosta Ríka Hagfræði- og stjórnmálafræðiháskólinn í London Háskólinn í Essex |
Starf | Stjórnmálamaður |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels (1987) |
Undirskrift |
Æviágrip
Óscar Arias er kominn úr ríkri kaffiræktarfjölskyldu. Hann hóf nám sitt heima í Kosta Ríka en gekk síðan í Boston-háskóla í Bandaríkjunum og í Hagfræði- og stjórnmálafræðiháskólann í London. Hann gekk í kostaríska Þjóðfrelsisflokkinn (PLN) á áttunda áratugnum og var útnefndur ráðherra landsskipulags og efnahagsstjórnar í ríkisstjórn forsetans José Figueres Ferrer árið 1972. Arias varð aðalritari PLN árið 1979 og átti eftir að verða forseti lýðveldisins fyrir flokkinn á tveimur tímabilum.
Forsetatíðir
Arias var kjörinn forseti í fyrra skiptið árið 1986. Ásamt honum var í fyrsta sinn kjörin kona í embætti varaforseta landsins, Victoria Garrón.
Á stjórnartíð Arias var mikill efnahagsuppgangur og atvinnuleysi lækkaði í Kosta Ríka. Forsetatíð Arias einkenndist þó fyrst og fremst af friðarumleitunum hans og harðri andstöðu hans gegn stuðningi Bandaríkjanna við kontraskæruliða í borgarastyrjöldinni í Níkaragva. Þar sem Arias viðhélt formlegu hlutleysi Kosta Ríka var hann í aðstöðu til að gerast óhlutdrægur milligöngumaður og sem slíkur gerðist hann helsti hönnuður friðaráætlunar sem fulltrúar El Salvador, Gvatemala, Hondúras og Níkaragva undirrituðu þann 7. ágúst árið 1987. Andstaða Bandaríkjamanna við samninginn gerði hann erfiðan í framkvæmd en Arias var engu að síður sæmdur friðarverðlaunum Nóbels hið sama ár fyrir að standa að gerð hans.
Eftir að kjörtímabili Arias lauk árið 1990 reyndi hann mörgum sinnum að koma á stjórnarskrárbreytingum til að nema úr gildi bann gegn því að fyrrum forsetar byðu sig fram til endurkjörs. Árið 2003 lögðu stuðningsmenn Arias fram kæru til hæstaréttar Kosta Ríka þar sem dregið var í efa að bannið við endurframboði fyrrum forseta stæðist stjórnarskrá landsins. Í apríl sama ár féllst hæstirétturinn á rök þeirra og dæmdi bannákvæðið ógilt.[3]
Arias bauð sig í kjölfarið fram til endurkjörs í forsetakosningum árið 2006.[4] Fyrrum forsetinn Luis Alberto Monge lýsti fyrirhuguðu endurframboði Arias sem „valdaráni“.[5] Arias var kjörinn forseti á ný með 40,5 % atkvæða þann 8. maí. Árið 2007 viðurkenndi hann formlega Alþýðulýðveldið Kína, 58 árum eftir stofnun þess.[6] Arias var milligöngumaður í stjórnarkreppunni sem fylgdi í kjölfar valdaránsins í Hondúras árið 2009.[7][8] Hann reyndi að hvetja til þess að hinum brottrekna forseta Hondúras, Manuel Zelaya, yrði hleypt aftur til landsins og leyft að ljúka kjörtímabili sínu. Arias stóð fyrir samningu samkomulags þess efnis[9] en að endingu fór samningurinn út um þúfur.[10]
Að lokinni embættistíð
Arias er meðlimur í samtökunum PeaceJam og heiðursmeðlimur í Búdapest-klúbbnum.[11] Í september árið 2017 var hann meðal þeirra sem skrifuðu undir opið bréf til Sameinuðu þjóðanna þar sem hvatt var til aðgerða gegn ofsóknum á róhingjum í Mjanmar.[12]
Árið 2019 sakaði sálfræðingurinn og aðgerðasinninn Alexandra Arce von Herold Arias formlega um nauðgun við almannaráðuneytið. Eftir að hún bar fram ásökun sína stigu þrjár konur til viðbótar fram og sökuðu Arias um kynferðislega áreitni.[13][14] Arias neitaði ásökununum.[13]
Tilvísanir
Wikiwand in your browser!
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.