From Wikipedia, the free encyclopedia
Íransþing, Majlis eða formlega íslamska ráðgjafarþingið (persneska: مجلس شورای اسلامی Majles-e Showrā-ye Eslāmī) er löggjafarþing Írans. Það er skipað 290 þingmönnum. Þar af eru fjórtán sæti frátekin fyrir trúarlega minnihlutahópa. Þingið var sett á stofn í stjórnarskrá Írans frá 1906 og sat upphaflega í tveimur deildum. Konur fengu kosningarétt og kjörgengi til Íransþings í Hvítu byltingunni árið 1963. Eftir írönsku byltinguna 1979 var öldungadeildinni skipt út fyrir Vaktmannaráðið sem hefur neitunarvald gagnvart löggjöf þingsins á grundvelli stjórnarskrárinnar og íslamskra laga.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.