From Wikipedia, the free encyclopedia
Álka (fræðiheiti: Alca torda) er strandfugl af svartfuglaætt. Latneskt heiti fuglsins er komið frá Linnaeusi og er fyrra orðið tekið úr norsku en það síðara úr sænskri mállýsku og vísa bæði til fuglsins sjálfs.
Álka | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Álka á Íslandi.
| ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Ástand stofns: Í lítilli hættu | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Alca torda Linnaeus, 1758 | ||||||||||||||
Álkan er nánasti lifandi ættingi hins útdauða geirfugls. Álkan verður ófleyg um tíma eftir að hafa verpt eggjum, líkast til sökum skyldleika síns við geirfuglinn. Hún er mun minni en geirfuglinn var, um 45 cm að jafnaði frá hvirfli til ilja. Hún er svört á bakinu og höfðinu en hvít á maganum. Á nefinu hefur hún hvíta mjóa rönd. Í sumarbúningi er framháls og vangi hvítur og augntaumurinn hverfur. Goggurinn er hár og flatur til hliðanna. Hún er hér á landi frá því í enda febrúar og fram í byrjun ágúst þó hluti stofnsins haldi sig hér allt árið.
Álkan gerir sér hreiður í urðum, glufum og skútum. Langstærsta álkubyggðin á Íslandi er undir Látrabjargi og meirihluti allra álka í heiminum finnst á Íslandi.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.