![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/00/William_Blake_by_Thomas_Phillips.jpg/640px-William_Blake_by_Thomas_Phillips.jpg&w=640&q=50)
William Blake
From Wikipedia, the free encyclopedia
William Blake (28. nóvember 1757 – 12. ágúst 1827) var enskt ljóðskáld, listmálari og prentari. Hann var lítt þekktur meðan hann lifði en er nú álitinn einn sá áhrifamesti í sögu ljóðagerðar og myndlistar á tímum Rómantíkarinnar. Hann hefur verið kallaður „án efa besti listamaður sem Bretland hefur alið af sér“. Þrátt fyrir að hafa aldrei stigið fæti út fyrir Bretland samdi Blake fjölbreytt og mjög táknrænt ritsafn þar sem ímyndunaraflið réð ríkjum. Með óhefðbundnu skoðunum hans á málum eins og trú, siðgæði, list og pólitík hefur Blake orðið þekktur sem bæði þjóðfélagslegur uppreisnarseggur og „hetja ímyndunaraflsins“ sem spilaði stórt hlutverk í að þróa Rómantíkina gegn Rökhyggjunni. Þessi efni eru kjarni textans í þekktasta verki Blakes, Söngvar sakleysisins og Ljóð lífsreynslunnar.
![]() |
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. |
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/00/William_Blake_by_Thomas_Phillips.jpg/640px-William_Blake_by_Thomas_Phillips.jpg)