Vogar (Færeyjum)
From Wikipedia, the free encyclopedia
Vogar (færeyska: Vágar), stundum kallaðir Vogey (færeyska: Vágoy), eru þriðja stærsta eyjan í Færeyjum. Eyjan liggur sunnan og vestan við Straumey og er næstvestust allra eyjanna, en aðeins Mykines er vestar. Íbúar Voga voru 3.367 árið 2020. Á eynni er eini flugvöllur Færeyja, Vogaflugvöllur.
Hæsta fjallið á eynni er Árnafjall (722 m). Á Vogum eru tvö stærstu stöðuvötn Færeyja, Saurvogsvatn (eða Leitisvatn) og Fjallavatn. Lögun Voga er oft sögð minna á hundshaus og er þá Fjallavatn auga hundsins en Saurvogsfjörður kjafturinn. Fjöldi hólma og skerja er í kringum eyna.