Votlendi er landsvæði sem er annaðhvort alltaf eða árstíðabundið svo mettað af vatni að það verður að sérstöku vistkerfi. Votlendi er staður sem er með eitthvað blautt. T.d. skurðir, mýrar, pollar, lækir og fl. Fuglar sem eru við votlendi á Íslandi eru til dæmis jaðrakan, svanir, lóuþræll, stelkur, óðinshani, keldusvín, bleshæna og endur (buslendur eða og kafendur).

Thumb
Friðland Svarfdæla við Dalvík er að mestu leyti samsett af fjölbreyttum votlendissvæðum.

Votlendi er mikilvægt búsvæði fugla, smádýra og plantna, og fjölmargar tegundir grasa festa rætur þar. Þrátt fyrir þetta hefur votlendi víða verið framræst, sem hefur neikvæð áhrif á plöntu- og dýralíf. Talið er að endurheimt votlendis sé mikilvægur þáttur í því að draga úr losun kolefnis enda votlendi geymir mikið af því. Losun kolefnis úr framræstu landi gæti þó verið ofmetin. [1]

Frá um 1945-1985 voru margir skurðir grafnir á Íslandi og votlendi þurrkað upp. [2]

Votlendissvæði á landi á Íslandi þökti um 7.800 ferkílómetra árið 2019. Þeim er skipt upp í 14 vistgerðir sem hver um sig hefur sín sérkenni.[3]

Myndir

Tengt efni

Tilvísanir

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.