Vikivaki
From Wikipedia, the free encyclopedia
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir yfirlit yfir aðrar merkingar „Vikivaki“
Vikivaki er forn hringdans sem stundaður hefur verið á skemmtunum um öll Norðurlönd frá miðöldum til okkar daga. Orðið vikivaki er notað ýmist um dansinn, kvæðin sem sungin eru undir dansinum eða „gleðir“ - skemmtanir þar sem slíkur dans er stundaður. Þekktasti vikivaki nútímans er eflaust dansinn sem er stiginn á Ólafsvöku í Færeyjum við söguljóðið Orminn langa síðustu helgina í júlí ár hvert.