Vaðlaheiðargöng
veggöng á Norðurlandi eystra / From Wikipedia, the free encyclopedia
Vaðlaheiðargöng eru jarðgöng undir Vaðlaheiði við Eyjafjörð. Göngin eru 7,4 kílómetra löng og ganga á milli Eyjafjarðar (gegnt Akureyri) og Fnjóskadals. Með göngunum styttist vegalengd á milli Akureyrar og Húsavíkur um 15,7 kílómetra og ekki þarf lengur að fara fjallveginn um Víkurskarð, en hann er gjarnan ófær á veturna.