![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/61/RIAN_archive_612748_Valentina_Tereshkova.jpg/640px-RIAN_archive_612748_Valentina_Tereshkova.jpg&w=640&q=50)
Valentína Tereshkova
From Wikipedia, the free encyclopedia
Valentína Vladímírovna Tereshkova (rússneska: Валенти́на Влади́мировна Терешко́ва;) (f. 6. mars 1937) er sovéskur geimfari og fyrsta konan sem fór út í geiminn 16. júní 1963.
Staðreyndir strax Fædd, Tími í geimnum ...
Valentína Tereshkova Валенти́на Терешко́ва | |
![]() Fyrsta konan í geimnum | |
Fædd | Valentína Vladimirovna Tereshkova 6. mars 1937 (1937-03-06) (87 ára) Bolshoje Maslenníkovo, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum (nú Rússlandi) |
---|---|
Tími í geimnum | 2 dagar, 23 klukkustundir og 12 mínútur |
Verkefni | Vostok 6 |
Undirskrift | ![]() |
Loka
Tereshkova hefur jafnframt verið virk í sovéskum og rússneskum stjórnmálum frá því á sjöunda áratugnum. Hún situr nú á rússneska þinginu fyrir stjórnarflokkinn Sameinað Rússland.[1] Árið 2020 flutti hún tillögu að stjórnarskrárbreytingum til að gera Vladímír Pútín forseta kleift að framlengja stjórnartíð sína umfram leyfilegan hámarksfjölda kjörtímabila.[2]