![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/34/Sodium_hydroxide.jpg/640px-Sodium_hydroxide.jpg&w=640&q=50)
Vítissódi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Vítissódi (NaOH), natríumhýdroxíð eða natrínhýdroxíð er jónískt efni myndað úr Na+ og OH-. Það er hvítt, fast efni með bræðslumarkið 318 °C og rammur basi. Suðumark þess er 1390 °C . Vítissódi er auðleystur í vatni en mikil varmamyndun fylgir því að leysa hann upp í vatni. Vítissódi er stundum seldur sem flögur, litlar kúlur eða sem upplausn. Heimsframleiðslan á vítissóda árið 1998 var um 45 milljón tonn.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/34/Sodium_hydroxide.jpg/640px-Sodium_hydroxide.jpg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/63/Sodium-hydroxide-crystal-3D-vdW.png/640px-Sodium-hydroxide-crystal-3D-vdW.png)
Vítissódi er afar ætandi og hættulegt efni. Mikilvægt er að geyma efnið í loftþéttu íláti því það binst koltvísýringi úr andrúmsloftinu. Vítissódi leysist upp í vatni en þá losnar mikill hiti. Efnið leysist líka upp í etanóli og metanóli en ekki í eter. Vítissódalausn skilur eftir gula bletti í efnum og á pappír.