![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b2/Inferno_Canto_5_line_4_Minos.jpg/640px-Inferno_Canto_5_line_4_Minos.jpg&w=640&q=50)
Víti (Dante)
From Wikipedia, the free encyclopedia
Víti eftir Dante Alighieri er fyrsta bókin í Hinum guðdómlega gleðileik, ítalskt söguljóð skrifað á árunum 1308-1321, klárað rétt fyrir andlát skáldsins. Víti fjallar um ferð Dante ásamt skáldinu Virgil niður til helvítis. Hinar bækur gleðileiksins eru Hreinsunareldur(en) og Paradís(en). Gleðileikurinn, eða Kómedían, eins og Dante nefnir hana sjálfur, telst til leiðslukvæða. Á ferð sinni hittir Dante margs konar fólk úr sögunni, heimspekinga, konungsfólk, páfa og fleiri. Á leið sinni hittir Dante einnig vinafólk og þekktar manneskjur úr Flórens sem hann þekkti. Hinn guðdómlegi gleðileikur er talinn vera ein helsta perla ítalskra bókmennta.
- "Á æviferðar minnar miðjum degi í myrkri þrungnum skóg ég staddur var og villzt hafði burt af beinum vegi" (Canto 1:1-3)