![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/25/The_Normal_Distribution.svg/langis-640px-The_Normal_Distribution.svg.png&w=640&q=50)
Tölfræði
From Wikipedia, the free encyclopedia
Tölfræði er undirgrein stærðfræðinnar sem fjallar um söfnun, greiningu, túlkun, framsetningu og úrvinnslu á gögnum. Tölfræði er þverfaglegt hjálpartæki í rannsóknum í vísindagreinum sem byggja á megindlegum aðferðum hvort sem um er að ræða raunvísindi, hugvísindi eða félagsvísindi.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/25/The_Normal_Distribution.svg/640px-The_Normal_Distribution.svg.png)
Hægt er að skipta tölfræði mjög gróflega í tvennt: lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði. Lýsandi tölfræði er notuð til að lýsa eiginleikum tölulegra gagna, svo sem miðsækni og dreifingu þeirra. Ályktunartölfræði er hins vegar notuð til að draga ályktanir um tiltekin gögn, svo sem varðar ákveðna eiginleika sem þýði hefur, út frá upplýsingum sem fengust í úrtakinu. Þær breytur sem mældar eru skiptast í nafnkvarða, raðkvarða, jafnbilakvarða eða hlutfallskvarða.