Tókýó
Höfuðborg Japan / From Wikipedia, the free encyclopedia
Tókýó (japanska 東京, Tōkyō, framburðurⓘ) er höfuðborg Japan og einnig stærsta borg landsins. Höfuðborgarsvæði Tókýó er einnig það stærsta í heimi en um 37,5 milljón manns (2021) eiga heima þar og þar af eiga 14 milljónir manna (2021) heima í sjálfri borginni þó fólksfjöldinn sé töluvert meiri þar sem mikill fjöldi fólks stundar vinnu og viðskipti innan hennar.
Tókýó
東京都 | |
---|---|
Hnit: 35°41′23″N 139°41′32″A | |
Land | Japan |
Umdæmi | Kantō |
Eyja | Honshū |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | Yuriko Koike |
Flatarmál | |
• Borg | 2.194 km2 |
• Stórborgarsvæði | 13.452 km2 |
Hæsti punktur | 2.017 m |
Lægsti punktur | 0 m |
Mannfjöldi (2023) | |
• Borg | 14.094.034 |
• Þéttleiki | 6.363/km2 |
• Þéttbýli | 39.105.000 |
• Stórborgarsvæði | 40.800.000 |
• Þéttleiki stórborgarsvæðis | 3.000/km2 |
Tímabelti | UTC+9 |
ISO 3166-2 | JP-13 |
Vefsíða | tokyotokyo |
Í borginni eru óvenju fáir skýjakljúfar miðað við aðrar stórborgir en það útskýrist að mestu leyti af byggingareglum vegna jarðskjálfta. Hús eru yfirleitt ekki hærri en 12 hæðir en Tókýó Midtown er stærsti skýjakljúfur borgarinnar, 248 m hátt. Hæsta mannvirki borgarinnar er aftur Himnatréð (Tokyo Skytree), 634 metra hátt, og slær þar með út Tókýó-turninn, en hann er „einungis“ 333 metra hár.