knattspyrnulið í London á Englandi From Wikipedia, the free encyclopedia
Tottenham Hotspur er knattspyrnulið í ensku úrvalsdeildinni og er frá norður-London. Guðni Bergsson og Gylfi Þór Sigurðsson hafa spilað með félaginu.
Tottenham Hotspur F.C. | |||
Fullt nafn | Tottenham Hotspur F.C. | ||
Gælunafn/nöfn | Spurs, Lilywhites | ||
---|---|---|---|
Stytt nafn | Tottenham Hotspur | ||
Stofnað | 1882, sem Hotspur F.C. | ||
Leikvöllur | Tottenham Hotspur Stadium | ||
Stærð | 62.062 | ||
Stjórnarformaður | Daniel Levy | ||
Knattspyrnustjóri | Ange Postecoglou | ||
Deild | Enska úrvalsdeildin | ||
2023-2024 | 5. sæti | ||
|
Tottenham Hotspur hefur lengi átt farsælt samband við gyðingasamfélagið í Tottenham hverfinu í London. Samfélagið óx hratt umaldamótin 1900 vegna þess að gyðingar frá Rússneska keisaradæminu flúðu ofsóknir þar í landi. Margir enduðu í Bretlandi og komu sér vel fyrir í London þar sem þeir gátu haldið í menningu sína og siði. Margi fluttu lengra norður á London svæðinu og í Tottenham hverfinu voru næg atvinnutækifæri. Áhrifamenn í samfélagi gyðinga hvöttu þá til að flytjast frá troðfullu Whitechapel og Brick Lane til Tottenham. Næstu 30 til 40 árin fléttaðist Tottenham Hotspurs við líf gyðinga af verkamannastétt í hverfinu sem voru fjölmennir í götum milli Hale og Landsdowne Road. Fyrir marga gyðinga var mikilvægt að aðlgast Bretlandi og fótbolti mikilvægur þáttur í því ferli. Margir kynslóðir breskra gyðinga hafa síðan þá fæðst og alist upp sem stuðningsmenn Tottenham Hotspur.
Stuðningsmenn Tottenham hafa lengi talað um sjálfa sig sem gyðingaher (e. Yid Army) sem er umdeilt og hefur liðið beðið stuðningsmenn um að hætta að nota þetta orð þar sem það er talið niðrandi fyrir gyðinga.
Sumarið 2023 Manor Solomon keyptir til Tottenham Hotspur og var hann fyrsti gyðingurinn sem spilaði fyrir félagið í 16 ár.
Keppni | Titlar | Ár |
---|---|---|
Enskir meistarar | 2 | 1950/51, 1960/61 |
Enskir bikarmeistarar | 8 | 1901, 1921, 1961, 1962, 1967, 1981, 1982, 1991 |
Enskir deildabikarmeistarar | 4 | 1971, 1973, 1999, 2008 |
Samfélagsskjöldurinn | 7 | 1921, 1951, 1961, 1962, 1967, 1981, 1991 |
Evrópukeppni bikarhafa | 1 | 1962/63 |
Evrópukeppni félagsliða | 2 | 1971/1972, 1983/1984 |
FA Youth Cup | 3 | 1970, 1974, 1990 |
|
|
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.