Torfi Bjarnason
From Wikipedia, the free encyclopedia
Torfi Bjarnason (28. ágúst 1838 – 24. júní 1915) var skólastjóri Ólafsdalsskólans við Gilsfjörð. Hann er einna þekktastur fyrir að vinna að framförum í landbúnaði á Íslandi, aðallega með stofnun Ólafsdalsskólans og með því að stuðla að útbreiðslu Torfaljásins og Ólafsdalsplógsins. Hann var fyrstur Íslendinga til að nema jarðyrkju í útlöndum.