Tears for Fears
From Wikipedia, the free encyclopedia
Tears for Fears er ensk popp/rokk-hljómsveit sem stofnuð var í Bath, árið 1981 af Roland Orzabal og Curt Smith.
Hljómsveitin var í byrjun bendluð við New Wave-stefnuna snemma á 9. áratugnum en fór síðar í rokk-átt. Önnur plata þeirra, Songs from the Big Chair (1985) fór á toppinn á Billboard 200-listanum í Bandaríkjunum og rokseldist einnig í Bretlandi. Lagið Everybody Wants to Rule the World er það þekktasta af þeirri skífu. Ósætti Smiths og Orzabal varð til þess að Smith yfirgaf hljómsveitina árið 1991 og gaf Orzabal út 2 plötur undir hljómsveitarnafninu án hans. Þeir sættust um árið 2000 og gáfu út eina plötu ásamt því að fara í tónleikaferðalög.