![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/df/Dharma_Wheel.svg/langis-640px-Dharma_Wheel.svg.png&w=640&q=50)
Tíbeskur búddismi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Tíbeskur búddismi er grein innan mahajana-búddisma sem hefur marga fylgjendur i Tíbet og víða um Mið-Asíu. Þessi grein búddisma einkennist af miklum og fjölbreyttum helgisiðum sem eiga rætur í bæði mahajana og vajrajana-hefðum og einnig fjölda klausturreglna. Veigamikill þáttur í tíbeskum búddisma eru tantrískar íhugunaraðferðir, jóga og aðrar andlegar þjálfunaraðferðir. Þessi grein búddisma er á stundum nefnd lamasiður, lamahefð eða lamaismi á vesturlandamálum en það er nafngift sem tíbeskir búddistar sætta sig ekki við. Orðið lama á tíbesku er samsvarandi sanskrítarorðinu gúru og þýðir kennari í dharma en er eingöngu notað sem heiðurstitill.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/df/Dharma_Wheel.svg/320px-Dharma_Wheel.svg.png)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/13/Guru_Rinpoche_-_Padmasambhava_statue.jpg/220px-Guru_Rinpoche_-_Padmasambhava_statue.jpg)
Tíbeskur búddismi á rætur í textum og trúarhefðum mahajana og vajrajanagreina búddismans og bárust þær í tveimur aðskildum bylgjum til Tíbet. Sú fyrri á áttundu og fram á níundu öld og sú seini á seinnihluta tíundu aldra. Samkvæmt söguhefð Tíbeta var það Indverski trúarspekingurinn sem í indverskum heimildum er nefndur Padmasambhava og í tíbeskum Guru Rinpoche sem árið 747 e.Kr. hóf að boða kenningar búddismans í Tíbet.
Í tíbeskum búddisma má finna arfleifð frá hinum fornu tíbesku trúarbrögðum sem nefnd eru bön. Hin sterka tantríska hefð tíbesks búddisma tengir hann einnig beint við tantrískar hefðir hindúisma. Þó kjarnasvæði tíbeska búddismans hafi ævinlega verið Tíbet hefur þessi hefð enn sterk ítök víða um Asíu, má þar nefna Bhutan, Mongólíu og Nepal. Einnig í Rússnesku héruðunum Burjatia, Kalmykia og Tuva og norðaustur Kína (Mandsjuria, Heilongjiang, Jilin). Þessi hefð er líka sterk í héruðunum Ladakh og Sikkim á Indlandi. Tíbeskur búddismi skiptist í fjórar megingreinar og fjölda minni greina.
Tíbeskur búddismi var ríkistrú í aldaraðir og klausturreglur fóru bæði með andleg og veraldleg völd. Höfuðstöðvar trúarinnar voru í borginni Lhasa og þar voru einnig aðalstöðvar æðsta yfrirmanns trúarinnar, Dalai Lama. Næstur honum að tign var Panchen Lama. Í samband við hernám Kínverja af Tíbet 1950 var hið veraldlega veldi trúarinnar brotið á bak aftur, Panchen Lama var settur í fangelsi og Dalai Lama flúði til Indlands 1959 og hefur hann búið þar síðan.