![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9e/WOA05_GLODAP_del_pH_AYool.png/640px-WOA05_GLODAP_del_pH_AYool.png&w=640&q=50)
Súrnun sjávar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Súrnun sjávar er skilgreind sem lækkun á pHstigi vegna athafna manna. Það er yfirstandandi lækkun á sýrustigi hafsins af völdum upptöku koltvísýrings úr andrúmsloftinu. Sjóvatn er örlítið basískt (pH > 7) en súrnun sjávar gerir það hlutlausara frekar en það verði súrt (pH < 7). Talið er að 30–40% af þeim koltvísýringi sem starfsemi manna losar út í loftið leysist upp í hafinu, ám og vötnum. Sökum áhrifa efnajafnvægis hvarfast hluti þessa koltvísýrings við vatnið og myndar kolsýru. Sumar þessar kolsýrusameindir hvarfast við vatnssameind og mynda tvíkarbónatjón og hýdróníumjón sem lækkar sýrustig sjávarins. Talið er að sýrustig sjávarins hafi lækkað úr 8,25 í 8,14 á tímabilinu 1751–1996.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9e/WOA05_GLODAP_del_pH_AYool.png/640px-WOA05_GLODAP_del_pH_AYool.png)
Súrnun sjávar hefur slæmar afleiðingar á sjávardýr og getur meðal annars dregið úr efnaskiptastarfsemi og skaðað ónæmiskerfi þeirra. Einnig veldur súrnun sjávar kóralbleikingu og kemur í veg fyrir að kórallar og svif geti myndað kalsíumkarbónat. Þetta getur valdið því að kóralrif leysist upp. Súrnun sjávar hefur jafnframt áhrif á fæðukeðju sjávarins.
Þótt yfirstandandi súrnun sjávar sé af manna völdum hefur hafið súrnað áður af náttúrunnar völdum. Síðasta tilvikið var fyrir u.þ.b. 56 milljón árum en orsakir þess eru ekki þekktar.