Súleiman mikli
From Wikipedia, the free encyclopedia
Súleiman I (6. nóvember 1494 – 5./6./7. september 1566), þekktastur sem Súleiman mikli var tíundi soldán Ottómanveldisins og sá sem lengst ríkti, frá árinu 1520 til dauðadags árið 1566. Hann er stundum nefndur „löggjafinn“ vegna gríðarlega umfangsmikilla endurbóta sinna á lagakerfi Ottómanveldisins. Hann leiddi einnig heri Ottómanveldisins til sigurs í orrustum á Ródos, við Belgrad og í Ungverjalandi en sigurgöngu hans lauk í umsátrinu um Vínarborg árið 1529. Hann innlimaði einnig í Ottómanveldið stór landsvæði í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku.
Staðreyndir strax
| ||||
Súleiman 1. سلطان سليمان اول | ||||
Ríkisár | 30. september 1520 – 6. september 1566 | |||
Skírnarnafn | Sultan Süleyman Han bin Selim Han | |||
Fæddur | 6. nóvember 1494 | |||
Trabzon, Tyrkjaveldi | ||||
Dáinn | 6. september 1566 (71 árs) | |||
Szigetvár, Ungverjalandi, Habsborgaraveldinu | ||||
Gröf | Moska Súleimans mikla, Istanbúl | |||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Selím 1. | |||
Móðir | Ayşe Hafsa Sultan | |||
Eiginkona | Hürrem Sultan | |||
Börn | 10; þ. á. m. Selím 2. |
Loka