Sykes–Picot-samkomulagið
From Wikipedia, the free encyclopedia
Sykes-Picot-samkomulagið var leynilegt samkomulag sem gert var á milli ríkisstjórns Bretlands og þriðja franska lýðveldisins í fyrri heimsstyrjöld. Samkomulagið var samið af samningamönnunum Mark Sykes frá Bretlandi og François Georges-Picot frá Frakklandi og er kennt við þá.
Samkomulagið snerist um fyrirhugaða skiptingu á landsvæði Tyrkjaveldis, sem var andstæðingur samningsríkjanna í styrjöldinni, milli Bretlands, Frakklands og Rússlands eftir að sigur yrði unninn. Frakkar fengu meðal annars suðausturhluta Tyrklands, norðurhluta Írak, Líbanon og sýrlensku strandlengjuna. Bretar fengu meðal annars svæðin milli Miðjarðarhafsins og Jórdanfljótsins; Jórdaníu, suðurhluta Íraks og litlu svæðin sem innihalda Haifa og Acre til þess að geta haft aðgang að Miðjarðarhafinu. Rússar áttu að fá Armeníu. Einnig áttu að vera tvö verndarsvæði fyrir Frakka og Breta.