Svetlana Allílújeva
Dóttir Jósefs Stalín (1926–2011) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Svetlana Íosífovna Allílújeva (rússneska: Светлана Иосифовна Аллилуева; georgíska: სვეტლანა იოსების ასული ალილუევა; 28. febrúar 1926 – 22. nóvember 2011), fædd undir nafninu Svetlana Íosífovna Stalína og síðar þekkt undir nafninu Lana Peters, var yngsta barn og einkadóttir sovéska leiðtogans Jósefs Stalín og seinni konu hans, Nadezhdu Allílújevu. Árið 1967 vakti hún heimsathygli þegar hún yfirgaf Sovétríkin og flutti til Bandaríkjanna. Hún hlaut bandarískan ríkisborgararétt árið 1978. Frá 1984 til 1986 sneri hún stuttlega aftur til Sovétríkjanna og hlaut aftur ríkisborgararétt þar. Svetlana var síðasta eftirlifandi barn Stalíns.
Staðreyndir strax Fædd, Dáin ...
Svetlana Allílújeva Светлана Аллилуева სვეტლანა ალილუევა | |
---|---|
Fædd | 28. febrúar 1926 |
Dáin | 22. nóvember 2011 (85 ára) |
Þjóðerni | Sovésk (1926–1967, 1984–1991) Ríkisfangslaus (1967–1978) Bandarísk (með ríkisborgararétt 1978–1984) Bresk (1992–2011) |
Maki | Grígoríj Morozov (g. 1944; sk. 1947) Júríj Zhdanov (g. 1949; sk. 1952) Ívan Svanídze (g. 1962; sk. 1963) William Wesley Peters (g. 1970; sk. 1973) |
Börn | 3 |
Foreldrar | Jósef Stalín og Nadezhda Allílújeva |
Undirskrift | |
Loka