![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e4/Suduroy.png/640px-Suduroy.png&w=640&q=50)
Suðurey (Færeyjum)
eyja í Færeyjum / From Wikipedia, the free encyclopedia
„Suðurey“ getur einnig átt við eyna Suðurey í Vestmannaeyjum.
Suðurey (færeyska: Suðuroy) er syðsta eyja Færeyja og sú fjórða stærsta, 163 km². Vesturströnd eyjarinnar er hálend og þar eru mörg þverhnípt fuglabjörg en austurströndin er mjög vogskorin. Mörg sker og hólmar eru við strendur eyjarinnar. Hæsta fjall eyjarinnar er Gluggarnir (610 m) en bjargið Beinisvørð vestan við þorpið Sumba er þó langþekktast.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e4/Suduroy.png/320px-Suduroy.png)