![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/20/Blind_Rise_%25284850765486%2529.jpg/640px-Blind_Rise_%25284850765486%2529.jpg&w=640&q=50)
Stálpastaðaskógur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Stálpastaðaskógur er skógur á eyðibýlinu Stálpastöðum í Skorradal. Jörðin er um 160 hektarar og voru af þeim um 100 hektarar fallnir til skógræktar, sem nú eru fullnýttir. Margar erlendar trjátegundir hafa verið þar settar niður, en mest þó af rauðgreni, sitkagreni og stafafuru sem þykja dafna þar vel. Í skógræktinni eru nú merktir minningarlundir og göngustígar og merkingar, þar á meðal trjásafn yfir ýmsar trjátegundir sem ræktaðar hafa verið upp í landi Stálpastaða. Frá árinu 1952 hafa verið gróðursettar á Stálpastöðum rúmlega 600.000 plöntur af 28 tegundum frá 70 stöðum úr veröldinni. Haukur og Soffía Thors ánöfnuðu Skógrækt ríkisins Stálpastaði 1951.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/20/Blind_Rise_%284850765486%29.jpg/640px-Blind_Rise_%284850765486%29.jpg)