From Wikipedia, the free encyclopedia
Styrmir Kárason (einnig nefndur Styrmir fróði eða Styrmir Kárason hinn fróði) (um 1170 – 20. febrúar 1245) var lögsögumaður, rithöfundur og príor í Viðeyjarklaustri.
Óvíst er um ætt Styrmis, en tilgátur um að faðir hans hafi verið Kári Runólfsson ábóti á Þingeyrum, d. 1187 eða 1188. Styrmir hefur líklega verið fæddur á árabilinu 1170–1180. Sigurður Nordal telur að Styrmir hafi að hluta alist upp í Þingeyraklaustri, hlotið menntun þar og dvalist þar fram undir 1220.
Styrmir var prestur að vígslu. Hann var heimilisprestur hjá Snorra Sturlusyni í Reykholti frá því fyrir 1228 til 1235. Hann var lögsögumaður 1210–1214 og 1232–1235. Varð síðan forstöðumaður, eða príor, klaustursins í Viðey 1235–1245. Í ljósi þess að Styrmir var heimilisprestur í Reykholti, þá er líklegt að hann hafi verið aðstoðarmaður Snorra Sturlusonar við ritstörf og bókagerð.
Talið er að fylgikona Styrmis, eða barnsmóðir, hafi verið Jórunn Einarsdóttir. Sonur þeirra var Valgarður Styrmisson.
Styrmir var kunnur rithöfundur á sinni tíð. Hann er orðaður við eftirtalin verk:
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.