Stofnunin um bann við efnavopnum
From Wikipedia, the free encyclopedia
Stofnunin um bann við efnavopnum[3] eða Efnavopnastofnunin[4] (e. Organisation for the Prohibition of Chemical Weapons eða OPCW) er milliríkjastofnun sem sér um framkvæmd alþjóðlega efnavopnasamningsins, sem tók gildi þann 26. apríl árið 1997. Stofnunin, sem telur til sín 193 aðildarríki og á höfuðstöðvar í Haag í Hollandi, beitir sér fyrir varanlegu banni og eyðingu á efnavopnum á alþjóðavísu.
Stofnunin um bann við efnavopnum | |
---|---|
Aðildarríki OPCW (í grænum lit). | |
Skammstöfun | OPCW |
Stofnun | 29. apríl 1997[1] |
Gerð | Milliríkjastofnun |
Höfuðstöðvar | Haag, Hollandi |
Hnit | 52.091241°N 4.283193°A / 52.091241; 4.283193 |
Meðlimir | 193 aðildarríki (Öll ríki sem hafa undirritað efnavopnasamninginn eru sjálfkrafa aðildarríki OPCW. 4 ríki Sameinuðu þjóðanna eru ekki aðilar: Egyptaland, Ísrael, Norður-Kórea og Suður-Súdan) |
Opinber tungumál | Arabíska, kínverska, enska, franska, rússneska, spænska |
Aðalframkvæmdastjóri | Fernando Arias |
Starfsfólk | Um 500[2] |
Vefsíða | www.opcw.org |
Stofnunin gengur úr skugga um að aðildarríki haldi sig við skilyrði efnavopnasamningsins, sem bannar notkun efnavopna og skyldar aðildarríkin til að farga þeim. Í þessu skyni metur stofnunin yfirlýsingar ríkjanna og gerir sannprófanir til að sjá hvort þær standist.
Stofnunin hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2013 fyrir „umfangsmikla vinnu sína til að útrýma efnavopnum“. Formaður Nóbelsverðlaunanefndarinnar, Thorbjørn Jagland, sagði: „Sáttmálarnir og starfsemi OPCW hafa orðið til þess að notkun efnavopna er orðin óviðunandi samkvæmt alþjóðalögum“.