Stjórnlagaþing
From Wikipedia, the free encyclopedia
Stjórnlagaþing er þing manna, sem stofnað er til í þeim tilgangi að semja nýja eða breyta eldri stjórnarskrá ríkis. Á máli lögfræðinnar er sagt að stjórnarskrárgjafinn (þ.e. fólkið) setji stjórnskipunarlög (þ.e. stjórnarskrána) en slíkt er ekki á færi löggjafarvaldsins, framkvæmdavaldsins eða dómsvaldsins.