From Wikipedia, the free encyclopedia
Páll Jónsson, iðulega kallaður Staðarhóls-Páll, (um 1534 – 10. apríl 1598) var af Svalbarðsætt, sonur Jóns Magnússonar ríka á Svalbarði og Ragnheiðar á rauðum sokkum. Hann var sýslumaður og bjó um tíma á Staðarhóli í Dalasýslu en lengst af á Reykhólum í Reykhólasveit.
Páll nam í Munkaþverárklaustri og einnig utanlands. Hann var talinn einn mestur lagamaður á sinni tíð og þótti heldur harðdrægur í viðskiptum. Hann kvæntist Helgu Aradóttur, sem var dóttir Ara sonar Jóns biskups Arasonar 2. janúar 1558, og unnust þau mjög í fyrstu en ástir þeirra kólnuðu brátt og versnaði allur vinskapur. Kvað Páll þá heldur ósnoturlega um hana (sjá hér), en hafði áður ort til hennar eldheit ástarljóð. Þau slitu svo að lokum samvistir. Páll var frumlegt skáld og í kveðskap hans gætir talsvert ljóðrænnar náttúrurómantíkur sem fremur minnir á miðevrópskan skáldskap þess tíma en íslenskan.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.